Mannlíf
Ragga Rix sendir frá sér lagið Bla bla bla
04.04.2022 kl. 20:11
Ragnheiður Inga Matthíasdóttir – Ragga Rix, 14 ára Akureyringur sem sigraði á síðasta ári í Rímnaflæði, rappkeppni unga fólksins, með laginu Mætt til leiks hefur sent frá sér blaðið Bla bla bla.
„Lagið er um hvernig það er að vera unglingur í dag, bodyshaming, eitruð vinasambönd og síma veruleikann,“ segir Ragnheiður. „Það er líka virkilega gaman að vera unglingur og mikið af skemmtilegum tækifærum, ég hvet alla unglinga til að vera skapandi.”
Smellið hér til að sjá og heyra lagið.