Mannlíf
Öruggir sigrar blakliða KA í Mosfellsbæ
![](/static/news/lg/blakid-saman.jpg)
KA-liðin í blaki voru bæði í eldlínunni á Íslandsmótinu í Mosfellsbæ í gær. Kvennaliðið komst aftur í efsta sæti Unbroken deildarinnar með 3:0 sigri á Aftureldingu og karlaliðið, sem vann Aftureldingu 3:1, komst upp að hlið Hamars á toppnum.
Lokatölur hrinanna í kvennaleiknum: 16/25, 18/25, 20/25. KA er nú efst með 38 stig, Völsungur hefur 37 og Afturelding 32. Öll liðin hafa spilað 15 leiki.
Úrslit hrinanna í leik karlaliðanna: 15/25, 25/18, 23/25, 13/25. Hamar og KA bæði með 39 stig en lið Hamars á einn leik til góða.