Nýjung í frístundastarfi fyrir börn og unglinga
Spilamiðstöðin Goblin býður í sumar upp á nýjung í frístundastarfi fyrir krakka og unglinga á Akureyri og nágrenni. Þessi „spennandi nýjung“, eins og hún er kölluð í tilkynningu, er „sumarnámskeið í hlutverkaspilum og safnspilaleikjum. Leikirnir eru mikil hugaríþrótt og reyna á sköpun, hugkvæmni, þrautseigju og efla félagsleg tengsl í skjálausu umhverfi. Þetta er viðbót við fjölbreytta flóru frístundastarfs á svæðinu og eykur enn líkurnar á að allir finni sér eitthvað við sitt hæfi.“
Goblin hlaut í vetur styrk frá SSNE til þess að þróa þessa nýjung.
Fyrir krakka sem fæddir eru 2010 til 2014 eru í boði námskeið í Pokémon TCG og D&D og fyrir unglinga fædda 2007 til 2010 er boðið upp á Magic the Gathering TCG og D&D.
„Næsta vetur er svo stefnt á að bjóða upp á skipulagðar vikulegar æfingar í þessum leikjum fyrir þennan aldur. Þess má geta að í t.d. mörgum safnspilaleikjum fara fram stórarar alþjólegar keppnir víðsvegar um heim. Þátttaka í slíkum keppnum kerfst mikillar þjálfunar og undirbúnings líkt og raf- og hefðbundnum íþróttum.
Dagskrá námskeiðana er að finna á www.goblin.is og skráning fer fram á Sportabler. Hægt er að nota frístundastyrk Akureyrarbæjar fyrir námskeiðin.“