Nemendur HA, MA og VMA fá 50% afslátt í Sambíó
Sambíóin á Akureyri ætla að bjóða nemendum Háskólans á Akureyri, Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri 50% afslátt af bíómiðum fjóra daga vikunnar frá og með deginum í dag til 15. desember.
„Nú er enn ein haustönnin gengin í garð í allri sinni dýrð og eflaust eftirvænting hjá mörgum takast á við skemmtileg verkefni bæði í skóla og félagslífi,“ segir í tilkynningu frá Sambíóunum.
„Við hjá Sambíóunum skiljum það mæta vel það að vera í námi er ekki bara krefjandi heldur þarf oft að halda aðeins betur um budduna svona rétt á meðan stúderingarnar standa yfir. Þess vegna ætlum við að bjóða memendum HA, MA og VMA 50% afslátt af bíómiðum mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá og með deginum í dag til 15. desember. Þó að skólagangan verði til þess að margir þurfi að búa við þrengri kost er ekki þar sem sagt að námið verði að vera algjört klausturslíf.“
Iðandi mann- og menningarlíf
„Alltaf hefur verið iðandi mann- og menningarlíf á Akureyri og það er okkar von að unga kynslóðin sem mun koma til með að erfa þetta land muni leysa okkur úr covid-inniveru-hjólförunum og hleypa lífi aftur í afþreyingar-, matar- og menningarflóru bæjarins og upplifa það sem hann hefur að geyma,“ segir Björn Árnason, framkvæmda- og fjármálastjóri Sambíóanna við Akureyri.net.
„Það eru margar stórar kvikmyndir væntanlegar í Sambíóin og mætti þar nefna; Black Adam, Black Panther Amsterdam og Strange World. Hægt er að nýta nemenda afslátt Sambíóanna með framvísun nemendaskírteinis. Afslátturinn gildir ekki með öðrum tilboðum og ekki á íslenskar myndir,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.