Fara í efni
Mannlíf

Líf og fjör á Sprellmóti háskólans í dag

Myndir: Rakel Hinriksdóttir

Hressir háskólanemar áttu sviðsljósið á Ráðhústorginu fyrr í dag þegar Sprellmótið svokallaða náði hámarki sínu. Á Sprellmótinu etja kappi nemendafélög Háskólans á Akureyri og hvert félag velur sér þema og klæðir sig í búninga.

Í ár mátti til dæmis sjá bændur og kýr, og eitt félagið klæddi sig upp sem nýjasta strákahljómsveit Íslands, IceGuys. Mikið fjör einkenndi hópinn og dómnefnd sem samanstendur af völdum aðilum úr starfsliði skólans gekk um í glæsilegum glimmergöllum.