Jólatorg í miðbænum tvær helgar í desember
Sú nýbreytni verður tekin upp á aðventunni í ár að sérstakt jólatorg með ýmsum jólalegum söluvarningi verður á Ráðhústorgi og verður það opnað formlega sunnudaginn 1. desember þegar ljósin á jólatrénu verða tendruð. Jólatorgið verður síðan opið tvær helgar í desember, 7.-8. og 14.-15. desember, frá kl. 13-17.
Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar. Þar segir að hægt verði að leigja út alls átta sölupláss í fjórum skreyttum einingarhúsum sem muni prýða torgið. Akureyrarbær óskar þar eftir umsóknum frá einstaklingum, samtökum eða fyrirtækjum, sem hafa til sölu varning með skýra tengingu við jólahefðir landsmanna. Valið verður úr innsendum umsóknum.
Um er að ræða tvær stærðir af húsum og er leiguverðið 20.000 kr. á söluaðila fyrir hvora helgi í þriggja metra breiðu húsi og 25.000 kr. á söluaðila fyrir hvora helgi í fjögurra metra breiðu húsi. „Gert er ráð fyrir að í flestum tilfellum ættu tveir söluaðilar að komast fyrir í einu húsi. Verðið miðast við einn söluaðila og eina helgi. Ekki er rukkað fyrir söluplássin 1. desember,“ segir á vef bæjarins.
Áhugasamir sækja um pláss í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar og er opið fyrir umsóknir til og með 6. nóvember nk. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið info@visitakureyri.is.