„Hér var verzlun“ – Ný sýning á Minjasafninu
Hvar keyptir þú fermingarfötin, leðurjakkann, bókina eða trúlofunarhringinn?
Þannig er spurt í tilkynningu frá Minjasafninu á Akureyri í tilefni sýningar sem hefst þar í dag, sýningin Hér var verzlun.
„Margir eiga minningar sem tengjast verslunum sem sumar hverjar eru horfnar. Á sýningunni Hér var verzlun gefur að líta ljósmyndir frá ýmsum sérverslunum frá síðustu áratugum á Akureyri. Sýningin er framhald sýningarinnar Hér stóð búð sem naut gríðarlegra vinsælda á síðasta ári. Þar gaf að líta myndir úr kjörbúðum og matvöruverslunum.“
Tekið er fram að í Minjasafninu verði einnig opnuð „nýjasta búð bæjarins, sérvöruverslunin Tízkan, þar sem kynslóðir geta sameinast í búðarleik.“
Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, opnar sýninguna í dag, laugardag, klukkan 14.00. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru allir sagðir hjartanlega velkomnir.
Sýningin verður svo opin daglega frá 13.00 til 16.00