Fara í efni
Mannlíf

Hann er svo ungur, ekki nema 93ja ára!

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Sólveig Elvina Sigurðardóttir, sem búsett hefur verið á Akureyri frá 18 ára aldri, fagnaði 100 ára afmæli sínu á sunnudaginn. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri sótti afmælisbarnið heim og færði henni fallegan blómvönd frá bæjarstjórn Akureyrar eins og hefð er fyrir þegar bæjarbúi nær þessum aldri.

Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar. Þar segir:

Sólveig fæddist 26. maí 1924 í Ólafsfirði og ól þar manninn til 18 ára aldurs þegar hún flutti til Akureyrar. Þar giftist hún Ottó Aríusi Snæbjörnssyni (1920-2012) og saman eignuðust þau soninn Magnús Aríus sem lést árið 2011 en lét eftir sig þrjú mannvænleg börn sem eiga orðið marga afkomendur.

Sólveig vann 32 ár í Sambandsverksmiðjunum á Gleráreyrum, fyrst í fataverksmiðjunni Heklu en síðan í skógerðinni Iðunni. Í spjalli við Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra lýsti hún því hvílíkt reiðarslag það var þegar verksmiðjunum var lokað og um 800 manns misstu vinnuna.

Sólveig er lífsglöð og mjög ern. Hún segist taka því sem að höndum ber með jafnaðargeði, eldar sjálf sinn mat og nýtur þess að búa á 4. hæð á fallegum stað með útsýni út Eyjafjörðinn.

Afmælisveislan var haldin með pompi og prakt á sunnudaginn og þá kom meðal annars einn af nágrönnum Sólveigar færandi hendi með afmælisgjöf frá öðrum íbúum fjölbýlishússins. „En hann er nú svo ungur,“ segir Sólveig. „Held að hann sé ekki nema 93ja ára.“