Gudmanns Minde næst elst – 190 ára í ár
Aðalstræti 14, eða gamli Spítalinn, er nokkuð örugglega annað elsta hús Akureyrar. Það er byggt 1835 og er því 190 ára á þessu ári. Sá fyrirvari er á, að mögulega hafi einhver hús sem skráð eru yngri verið flutt annars staðar frá og verið þannig eldri en skráð byggingarár; jafnvel eldri en Gamli Spítalinn.
Þetta segir Arnór Bliki Hallmundsson í nýjum pistli í röðinni Hús dagsins. Pistillinn hefst á þessum orðum:
Einhver virtasti borgari Akureyrar á þriðja fjórðungi 19. aldar var vafalítið Bernhard Steincke, sem fór fyrir Gudmannsverslun. Honum var umhugað um mörg framfaramál samfélagsins og ekki aðeins umhugað, heldur kom hann miklu í verk og var sérleg driffjöður í hinum ýmsu menningar- og framfararmálum samfélagsins. Á meðal þeirra þjóðþrifa sem hann kom til leiðar var fyrsta sjúkrahús bæjarins. Var það fyrir tilstuðlan Steincke, sem eigandi téðrar Gudmannsverslunar, Friðrik Gudmann, kom upp spítala fyrir bæjarbúa. Það var árið 1873 og var sjúkrahúsið vígt formlega 1874. Sjúkrahúsið stóð við efri götu Akureyrar ( en þá skiptist byggðin einfaldlega í efra og neðra pláss ) og hlaut löngu síðar númerið 14 við götuna Aðalstræti. Hver sem á leið fram hjá Gamla Spítalanum eða Gudmanns minde sér þar nafn hússins á skilti ásamt byggingarári. Þar stendur hins vegar hvorki 1873 né 1874 heldur blasir ártalið 1835 við hverjum manni sem á leið þar um. (Þess má geta, að þetta ártal er líka fæðingarár þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar). Það vill nefnilega svo til, að húsið, fyrrum læknisbústaður bæjarins, var orðið 37 ára gamalt þegar þeir Gudmann og Steincke komu að því árið 1872.
Smellið hér til að lesa pistil Arnórs Blika