Fara í efni
Mannlíf

„Geggjað veður á Akureyri“ um Versló

Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Samkvæmt Facebookhópnum Geggjað veður á Akureyri er besta veðrið alltaf á Akureyri. Mynd: unsplash.com/@enginakyurt

Það styttist í verslunarmannahelgina og margir farnir að spá í veðurspánni fyrir komandi helgi. Gárungar á Akureyri, sem tilheyra Facebookhópnum „Geggjað veður á Akureyri,“ hafa mestar áhyggjur af því að það verði svo gott veður á Akureyri næstu daga að það verði ekki hægt að fara út úr húsi. 

 

Það var tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar sem stofnaði áðurnefndan Facebookhóp árið 2020. Eins og segir í lýsingu á síðunni þá er hún ætluð fyrir ljósmyndir og frásagnir af geggjuðu veðri á Akureyri. Nú eru 8500 meðlimir í hópnum og hjá þeim er alltaf sól í sinni og besta veðrið alltaf án efa á Akureyri.  Í sumar hafa margar skemmtilegar myndir birst á síðunni og endurbirtir Akureyri.net hér nokkrar, svona fyrir þá sem hafa áhyggjur af verslunarmannahelgarveðrinu.