Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
17.02.2023 kl. 11:40
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 119. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Ekki er vitað hver tók mynd dagsins eða hvar þetta er. Ef vel er að gáð sést að barna og hundur standa fyrir utan bæinn. Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina – hver maðurinn er og hvar myndin er tekin – eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is
- HELGASTAÐIR – Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Ábendingar hafa borist um að þetta séu Helgastaðir í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR