Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
28.10.2022 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 103. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa þær vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku og margir sendu upplýsingar. Þetta eru Hofsstaðir í Viðvíkursveit í Skagafirði. Gamla bærinn var rifinn á seinni hluta síðustu aldar af þáverandi eiganda Hofsstaða. Núverandi eigendur eru þeir sömu og að Hofsstaðaseli, þarna næst norðan við, sagði í skeyti frá einum lesanda.