Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
21.10.2022 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 102. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa þær vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Ýmsar ágiskanir bárust en flestir höfðu rétt fyrir sér: Þetta er brúin yfir Jökulsá á Fjöllum skammt frá Grímsstöðum sem byggð var 1947. Fyrir neðan er svo mynd sem Þorgeir Baldursson tók af þessari fallegu brú og næsta nágrenni 7. janúar 2021 eftir að krapastífla lokaði þjóðvegi 1.
- Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR