Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
14.10.2022 kl. 10:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 101. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa þær vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Ólafur Jónsson, ráðunautur og rithöfundur, tók myndina og þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um hana eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Ekki leið á öngu þar til upplýsingar fóru að berast: Myndin er tekin í Fljótsdal á Héraði við kirkjustaðinn Valþjófsstað. Berggangurinn sem skásker Valþjófsstaðafjall kallast Tröllkonustígur og er mjög áberandi. Húsið á myndinni, Ungmennafélagshúsið, var byggt á árunum 1912 til 1917 af Ungmennafélagi Fljótsdæla og varð miðstöð alls félagsstarfs í sveitinni, skv. Fljótsdælu, bók Helga Hallgrímssonar náttúrufræðings um mannlíf og náttúrufar í Fljótsdalshreppi. Húsið var síðar rifið og nýtt byggt á sama stað um 1960. Það heitir Végarður er nú samkomuhús sveitarinnar.
- Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR