Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
18.04.2025 kl. 06:00

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 232. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi skemmtilega mynd er tekin og hvaða konur eru þarna á ferð? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin fallega hér fyrir neðan birtist síðasta föstudag og svo vel vill til að upplýsingar bárust um hana frá fyrstu hendi, frá Margréti S. Jóhannsdóttur á Grenivík.
- Myndin er tekin á Grenivík og stúlkurnar eru, til vinstri, Margrét S. Jóhannsdóttir frá Miðgörðum og sú til hægri er Steinunn Axelsdóttir frá Höfðabrekku, báðar á Grenivík.