Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
07.03.2025 kl. 06:00

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 226. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd stórskemmtilega mynd er tekin og hvaða fólk er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist síðasta föstudag. Ekki hafa borist nákvæmar upplýsingar um hana og lesendur eru hvattir til að skoða myndina betur.