Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 221. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Veistu hvar þessi dásamlega mynd er tekin og jafnvel hvaða fólk þetta er? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

    • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Konan er þarna í kláfi sem eitt sinn var yfir Laxá í Mývatnssveit við bæinn Helluvað. „Kláfurinn er rétt fyrir ofan þar sem gamli brúsapallurinn á Helluvaði var við veginn. Strengirnir eru enn á og stólpar hlaðnir með steinlími,“ sagði Mývetningurinn Benedikt Sigurðarson, fyrrverandi skólastjóri á Akureyri, í athugasemd eftir að myndinni var deilt á Facebook.