Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
04.10.2024 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 204. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, flestar hafa vakið mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar myndirnar.
Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Hún er tekin við Hótel Varmahlíð í Skagafirði. Þar var á árum áður svokölluð skiptistöð þar sem langferðabifreiðar höfðu viðkomu, til dæmis bílar Norðurleiðar.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR