Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
27.09.2024 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 203. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, flestar hafa vakið mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar myndirnar.
Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er í Vestmanneyjum. Myndin er tekin austur Strandveg, fremstu húsin bæði vinsta og hægra megin eru svokölluð Sælahús, skv. upplýsingum sem bárust. Annað húsið vinstra megin, það reisulega með kvistinum, er Magnahúsið sem svo er kallað – þar var Vélsmiðjan Magni með starfsemi en í húsinu nú rekið veitingahúsið Slippurinn.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR