Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 197. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, flestar hafa vakið mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar myndirnar. 

Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um staðinn eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er bærinn Háls í Eyjafjarðarsveit. Svanhildur Daníelsdóttir skrifar: Fjósið var vinstra megin (sunnan við) við húsið og aftan við fjósið var hlóðaeldhús. Hægra megin við húsið (norðan megin) var skemman þar sem amboðin og fleira var geymt og svo voru fjárhúsin norðan við skemmuna. Hesthús var bakatil, aftan við bæjarhúsið. Ég kom oft í Háls á 7. áratugnum með móður minni sem hjálpaði þeim mæðginum Benedikt og Indíönu að gera slátur og slátrið var soðið í hlóðaeldhúsinu.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR