Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 188. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Veistu hvaða kirkja er á myndinni? Þeir sem kunna að búa yfir þeim upplýsingum hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er Hjarðarholtskirkja í Laxárdal í Dalasýslu. Ein af krosskirkjum Rögnvaldar Ólafssonar arkitekts. Vígð 1904.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR