Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
10.05.2024 kl. 10:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 183. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Kannastu við konuna og stúlkuna? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er hótel Valhöll á Þingvöllum, sem stóð gegnt Þingvallakirkju og Þingvallabænum. Hótelið brann til kaldra kola 10. júlí árið 2009.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR