Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 157. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Hún er tekin við bæinn Tjörn í Svarfaðardal skömmu eftir 1930 og drengirnir eru Þórarinn Pétursson og Páll Axelsson. Hallfríður dóttir Þórarins sendi Akureyri.net ítarlegar upplýsingar sem lesa má með því að smella hér. 

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR