Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
03.11.2023 kl. 14:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 156. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin og hvaða drengir þetta eru? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta er að öllum líkindum grunnskólinn í Borgarnesi. Miklar vangaveltur fóru í gang eftir að myndin birtist. Barnaskólinn á Sauðárkróki og Kópavogsskóli voru einnig nefndir til sögunnar, en nokkrir skólar eru sagðir hafa verið byggðir eftir sömu teikningunni.
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR