Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 150. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvaða fólk er á myndinni eða hvar hún er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Upplýsingar bárust frá nokkrum lesendum nánast um leið og myndin var birt! Þetta er gamli skíðaskálinn í Hveradölum, á Hellisheiði milli Reykjavíkur og Hveragerðis. Hann brann til kaldra kola í janúar árið 1991. Einn lesandi nefndi að bíllinn á myndinni væri af gerðinni Mercury, árgerð 1947.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR