Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 138. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku og upplýsingar voru ekki lengi að berast. Þetta er bærinn Leyningur í Eyjafjarðarsveit (tilheyrði á sínum tíma gamla Saurbæjarhreppi). Ekki hafa borst ábendingar um nöfn fólksins á myndinni; þrír karlar sitja framan við húsið, á mjólkurbrúsum að því er virðist, og hægra megin við húsið er ung stúlka. Gaman væri ef einhver þekkti fólkið og sendi þær upplýsingar.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR