Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
23.06.2023 kl. 09:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 137. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.
Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is
- Myndin hér að neðan birtist fyrir viku og ábendingar voru ekki lengi að berast: Þetta er gamli Hreðavatnsskálinn í Grábrókarhrauni í Borgarfirði. Vertinn Vigfús Guðmundsson er til vinstri. Hægra megin við skálahornið sést í toppinn á Baulu og við hægri jaðar myndarinnar er dálítið horn af Grábrók. Myndin er frá upphafstímum ferðaþjónustu á Íslandi, segir í skeyti sem lesandi sendi. Annar segir: Þessi skáli stóð á steyptri plötu fyrir neðan Bifröst sem kom seinna. Húsið var flutt og er nú notað sem sumarbústaður fyrir neðan bæinn Hríshól. Sumarbústaðurinn heitir reyndar Hríshóll
Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR