Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 131. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri, á netfangið hg@minjasafnid.is

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta eru Grímsstaðir á Fjöllum - hús Karls og Guðnýjar eins og sagði í einni ábendingunni sem barst.

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR