Fara í efni
Mannlíf

Ein með öllu: Miðbærinn að fyllast af möffins

Þessar fallegu og ljúffengu bollakökur bíða nýrra eigenda á Ráðhústorginu í dag kl. 14-16. Myndir: Þorgeir Baldursson.

Fastur viðburður undanfarin ár og sífellt vinsælli er bollakökusala til styrktar fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri – eða Mömmur og möffins eins og þessi viðburður er betur þekktur. 

Undirbúningurinn er á lokastigi, en Mömmur og möffins verður á Ráðhústorginu kl. 14-16 í dag. 

Við ætlum að hittast og eiga notalega stund á Ráðhústorginu með ljúffengum möffins, kökum og tónlist. Öll innkoma viðburðarins rennur líkt og áður til Fæðingadeildarinnar á Akureyri. Tökum með okkur teppi og góða skapið,“ segir í tilkynningu. Tekið er fram að posi verður á staðnum; sem sagt, hægt verður að greiða með korti.

Þorgeir Baldursson myndaði hluta þess sem verður í boði á Ráðhústorginu í dag.