Fara í efni
Mannlíf

Ein með öllu í gær - MYNDIR

Tónlistarkonan Bríet trekkti vel að á Ráðhústorginu í gærkvöld. Hér fær hún aðstoð frá söngelskum aðdáendum. Mynd: Hilmar Friðjónsson.

Hilmar Friðjónsson var á ferð með myndavélina á hinum ýmsu viðburðum Einnar með öllu í gær. Hér er brotabrot af því sem bar fyrir augu og linsu í miðbænum þegar hlauparar í Súlur vertical luku keppni, mömmur seldu möffins, hvolpasveitin var ungu kynslóðinni hvatning og svo í gærkvöld þegar tónlistin var alls ráðandi.