Fara í efni
Mannlíf

Ein með öllu – dagskráin í dag

Frá lokatónleikum Einnar með öllu 2023. Mynd: Hilmar Friðjónsson.

DAGSKRÁIN Í DAG, SUNNUDAG

Norður
  • 10:00 - FjölskylduWOD! CROSSFIT NORÐUR býður fólk velkomið í ParaWod.
    Á meðan geta börnin hoppað í hoppkastala sem mun standa fyrir utan ef veður leyfir. Starfsfólk passar börnin í hoppkastalanum.
Kjarnaskógur
  • 13:00 - Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi verður haldinn á Birkivelli.
    Glæsileg dagskrá - sjá hér.
Tívolí
  • 12:00-00:00 - Tvö tívolí á leikhúsflötinni, tvær mismunandi miðasölur.

Ráðhústorg

  • Til kl. 16. Matarvagnar verða á torginu til kl.16:00 og færa sig svo yfir á Leikhúsflötina.
  • 13:00 - Markaðsstemning - Það verður markaðsstemning á torginu þar sem hægt verður að gera góð kaup á alls kyns munum.

Glerártorg

  • Opið kl. 12-17. Upplifðu einstakan götumarkað á Glerártorgi um verslunarmannahelgina. Ótrúleg tilboð og afslættir á úrvalsvörum.

Í KVÖLD

Leikhúsflötin

  • 20:00 - Sparitónleikar Einnar með öllu 2024. Eftirminnilegir tónleikar þar sem hjörtun slá í takt. Kynnar kvöldsins er Kata Vignis og DJ Lilja sem sjá um að gera hátíðina ógleymanlega. Stútfull dagskrá með glæsilegu tónlistarfólki sem endar á glæsilegri flugeldasýningu frá Björgunarsveitinni Súlum og smábátaeigendur tendra upp himininn með blysum frá Gúmmíbátaþjónustu Norðurlands.
    Herra Hnetusmjör, Prettyboitjokko, Kristmundur Axel, Birna Karen, Stjórnin, Páll Óskar, Saint Pete, Drottningar og hljómsveitin 7.9.13
    Með því að mæta snemma gefst tími til að næla sér í girnilega götubita fyrir sýninguna - nánari upplýsingar.

Græni Hatturinn - Stjórnin

Sjallinn - Herra Hnetusmjör - Prettyboitjokko - Kristmundur Axel - Saint Pete

Götubarinn - Opið til 3:30. Saint Pete kl. 01:30.