„Búllsjitt nostalgía“ og Aðalsteinn orðlaus
Allt var betra áður fyrr, er heiti nýjasta pistils Stefáns Þórs Sæmundssonar þar sem þeir Aðalsteinn Öfgar velta vöngum um samfélagið.
„Allt var miklu einfaldara og betra áður fyrr, allir hamingjusamari og börnin frjáls að leika sér úti um allar koppagrundir ...“ segir Aðalsteinn í enn einum magnaða pistlinum úr smiðju Stefáns Þórs.
Aðalsteinn lét móðann mása drjúga stund þar til Stefán pistlahöfundur tók til máls:
„Nú verð ég bara að segja það sem mér býr í brjósti. Mér finnst þessi nostalgía búllsjitt,“ sagði ég ákveðinn. „Hvernig heldurðu að þeim hafi liðið sem voru lesblindir, holgóma, þroskaskertir, feitir, talnablindir ... ?“
Aldrei þessu vant var það Aðalsteinn Öfgar sem varð orðlaus og lét sig hverfa.
Smellið hér til að lesa pistil Stefáns Þórs