Fara í efni
Mannlíf

Bestu augnablik síðasta sumars

Það henti ekki nema endrum og sinnum að haldin voru slides-kvöld í húsum fjölskyldunnar á Syðri-Brekkunni, vanalega þó að vetri til og vel fram á vor, en þá var reynt að telja sér einhverja lítilfjörlega trú um að sumarið fram undan yrði með skaplegra móti.

Þannig hefst 29. pistill Sigmundar Ernis Rúnarssonar, rithöfundar og sjónvarpsmanns, í röðinni Akureyri æsku minnar. Nýr pistill birtist á Akureyri.net á hverjum mánudegi.

Og því var um að gera að varpa á veggi heimilisins því valda safni sem til var af bestu augnablikum síðasta sumars. Og ylja sér við endurminningarnar.

En það þurfti að hafa fyrir þessu. Mikil ósköp.

Smellið hér til að lesa pistil Sigmundar Ernis