Fara í efni
Mannlíf

Árlegir Bíladagar hefjast í kvöld

Frá keppni í sandspyrnu á Bíladögum á síðasta ári. Mynd: Árni Már Árnason

Árlegir Bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar hefjast í dag, fimmtudag, 13. júní, og þeim lýkur formlega á þjóðhátíðardaginn, mánudag 17. júní, með bílasýningu í Boganum.

  • Vart hefur orðið við glannaakstur á Bíladögum fyrri ára en slíkur akstur er ólöglegur og samræmist engan veginn siðareglum Bíladaga sem höfuðáhersla verður lögð á sem fyrr að allir virði, segir á vef Akureyrarbæjar.
  • Þar segir ennfremur: Hart verður tekið á þeim brotum sem kunna að koma upp og gildir þá einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.

DAGSKRÁ BÍLADAGA

Öll keppni fer fram á svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg.

Fimmtudagur 13. júní

  • Brekkusprettur (Hillclimb) hefst kl. 19:00

(Brekkursprettur er aksturskeppni sem gengur út á akstur á lokaðri leið þar sem keppt er um hver fer á sem stystum tíma frá ráslínu til endamarks. Aðeins eitt ökutæki er á akstursleið hverju sinni. Eitt af skilyrðunum er að vera í bíl sem búinn er öryggisbúri fyrir ökumann).

Föstudagur 14. júní

  • Auto-x keppni hefst kl. 9:30
  • Drift – keppni hefst kl. 13:00
  • Bílalimbó – keppni hefst kl. 21:00

Laugardagur 15. júní

  • Götuspyrna – keppni hefst 13:00
  • Hávaðakeppni (2 step) – hefst 20:00

Sunnudagur 16. júní

  • Sandspyrna – keppni hefst 13:00
  • Burn-out keppni hefst 20:30

Mánudagur 17. júní

  • Bílasýning í Boganum kl. 10:00-18:00

Í tilkynningu á vef Akureyrar kemur fram að stjórnendur Bíladaga standi fyrir öflugri gæslu á tjaldsvæði hátíðarinnar og á viðburðum. „Bætt verður verulega í löggæsluna þessa helgi og verða lögreglumenn á vakt bæði á merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn umhverfismiðstöðvar eru langt komnir með að setja upp hraðahindranir víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og háskalegan hraðakstur sem er að sjálfsögðu bannaður.“