Árlegir Bíladagar hefjast á fimmtudag
Árlegir Bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar hefjast á fimmtudag, 13. júní, og þeim lýkur formlega á þjóðhátíðardaginn, mánudag 17. júní, með bílasýningu í Boganum.
- Vart hefur orðið við glannaakstur á Bíladögum fyrri ára en slíkur akstur er ólöglegur og samræmist engan veginn siðareglum Bíladaga sem höfuðáhersla verður lögð á sem fyrr að allir virði, segir á vef Akureyrarbæjar.
- Þar segir ennfremur: Hart verður tekið á þeim brotum sem kunna að koma upp og gildir þá einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.
DAGSKRÁ BÍLADAGA
Öll keppni fer fram á svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg.
Fimmtudagur 13. júní
- Brekkusprettur (Hillclimb) hefst kl. 19:00
(Brekkursprettur er aksturskeppni sem gengur út á akstur á lokaðri leið þar sem keppt er um hver fer á sem stystum tíma frá ráslínu til endamarks. Aðeins eitt ökutæki er á akstursleið hverju sinni. Eitt af skilyrðunum er að vera í bíl sem búinn er öryggisbúri fyrir ökumann).
Föstudagur 14. júní
- Auto-x – keppni hefst kl. 9:30
- Drift – keppni hefst kl. 13:00
- Bílalimbó – keppni hefst kl. 21:00
Laugardagur 15. júní
- Götuspyrna – keppni hefst 13:00
- Hávaðakeppni (2 step) – hefst 20:00
Sunnudagur 16. júní
- Sandspyrna – keppni hefst 13:00
- Burn-out – keppni hefst 20:30
Mánudagur 17. júní
- Bílasýning í Boganum kl. 10:00-18:00
Í tilkynningu á vef Akureyrar kemur fram að stjórnendur Bíladaga standi fyrir öflugri gæslu á tjaldsvæði hátíðarinnar og á viðburðum. „Bætt verður verulega í löggæsluna þessa helgi og verða lögreglumenn á vakt bæði á merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn umhverfismiðstöðvar eru langt komnir með að setja upp hraðahindranir víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og háskalegan hraðakstur sem er að sjálfsögðu bannaður.“
Mynd af vef Akureyrarbæjar
Mismunandi þjónusta á tjaldsvæðum
Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að ólík þjónusta verði eftir tjaldsvæðum meðan á Bíladögum stendur:
- Tjaldsvæði Bílaklúbbsins verður opnað miðvikudaginn 12. júní kl. 18 og er opið til þriðjudagsins 18. júní.
- 18 ára aldurstakmark er inn á tjaldsvæði Bíladaga og er svæðið opið öllum gestum hátíðarinnar, ekki aðeins þeim sem keypt hafa passa á alla viðburði.
- Fjölskyldutjaldsvæðið að Hömrum er opið um Bíladaga líkt og alla daga ársins.
- Tjaldsvæðið að Hömrum er fyrst og fremst ætlað fjölskyldum og aðgangi stýrt inn á svæðið miðað við það.
- Aukin gæsla verður þessa helgi og gerðar eru ríkar kröfur til tjaldgesta um að næði sé virt á svæðinu svo bæði börn og fullorðnir geti notið dvalarinnar.
- 18 ára aldurstakmark er inn á tjaldsvæðið á Hömrum og yngri einstaklingum sem ekki verða í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum verður vísað frá.
- Það dugar ekki að vera í fylgd með einhverjum sem er eldri en 18 ára.
- Fjölskyldutjaldsvæðið við Hrafnagil verður lokað fyrir 30 ára og yngri frá miðvikudeginum 12. júní til mánudagsins 17. júní. Þá verður hliðvarsla og ströng gæsla til að stjórna aðgengi að svæðinu.