Afi Alberts óvænt í sviðsljósið í Genóa
Benedikt Guðmundsson komst óvænt í sviðsljósið í fyrradag þegar hann var í heimsókn hjá sonarsyninum, Alberti Guðmundssyni, sem leikur fótbolta og fær borgað fyrir það hjá liði Genóa í samnefndri borg á Ítalíu. Tilraun til treyjukaupa í verslun í borginni urðu að dýrmætri myndatökustund heimamanna því allir vildu mynda sig með afa Alberts.
Benedikt sagði á samfélagsmiðlum frá upplifun sinni þegar hann ætlaði að kaupa nokkrar Genoa-treyjur merktar Alberti. Hann hafi því miður orðið frá að hverfa því treyjur með nafni Alberts og númeri hafi verið uppseldar.
„Þegar ég var búinn að segja fólkinu hver ég væri, brjálaðist allt í búðinni og þeir sem voru að versla og staffið fóru að taka mynd af mér og biðja um mynd af mér með þeim. Mér leið eins og ég væri frægur,“ skrifaði Baddi, eins og hann er kallaður nyrðra.
Þegar Akureyri.net heyrði í Badda í gærmorgun gat hann því miður ekki látið okkur í té myndir af sér með aðdáendum úr versluninni því hann átti sjálfur enga mynd af sér í búðinni, bara fólkið sem tók af honum myndir og hann þekkir hvorki haus né sporð á.
Baddi er í Ítalíuferð ásamt syni sínum, Einari Loga - Einsa Ben eins og við þekkjum hann. Þeir feðgar hafa stundum lent í svaðilförum á ferðalögum sínum erlendis, til dæmis þegar þeir fóru á EM 2016. Stundum lent í villum þegar þeir hafa ekið um Evrópu. Baddi setti einmitt á Facebook í fyrradag að „eins og venjulega þegar við feðgarnir erum á ferðalagi vorum við áttavilltir við komuna til Genoa.“
„Enduðum í göngugötu þar sem þjóninn á þessum fína veitingastað sá aumur á okkur og pantaði leigubíl fyrir okkur sem kom innan nokkurra mínúta og kom okkur á hótelið,“ skrifar Baddi, en líklega ýkjur af okkur hér á Akureyri.net að tala um svaðilfarir.
Frægir frændur. Einsi Ben og Albert Guðmunds í rólegheitum heima hjá Alberti - á 29. hæð með frábært útsýni yfir Genoa. Mynd: Benedikt Guðmundsson