Fara í efni
Mannlíf

143 nýstúdentar frá MA – dúxinn með 9,83

Nýstúdentar frá Mennaskólanum á Akureyri sem brautskráðir voru í dag ásamt Karli Frímannssyni skólameistara og Sigurlaugu Önnu Gunnarsdóttur aðstoðarskólameistara. Mynd: Páll A. Pálsson

Í dag voru 143 stúdentar brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri. Áratuga hefð er fyrir því að skólinn brautskrái stúdenta á þjóðhátíðardaginn og var skólanum nú slitið í 144. sinn. Ekki er ofsagt að veðrið lék við nýstúdenta og fjölskyldur þeirra í dag.

Dúx skólans (hæstur á stúdentsprófi) í ár er Max Forster sem brautskráðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,83. Í vetur fékk hann einkunnina 9,9.

Næst efst á stúdentsprófi, semidúxar, voru Magnús Máni Sigurgeirsson og Vilborg Líf Eyjólfsdóttir með 9,57; bæði af raungreina- og tæknibraut. „Öll fengu þau fjölda verðlauna og viðurkenninga. Skólinn óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn,“ segir á vef skólans. 

  • Hæst í 1. bekk í vetur voru Kjartan Valur Birgisson 1V og Snædís Hanna Jensdóttir 1U með 9,8
  • Hæstur í 2. bekk var Árni Stefán Friðriksson 2X með 9,7
  • Hæstur í 3. bekk var Max Forster 3UV með 9,9

Dúx skólans MA, Max Forster, til vinstri. Hann brautskráðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,83. Til hægri eru semidúxarnir tveir, Magnús Máni Sigurgeirsson og Vilborg Líf Eyjólfsdóttir, sem fengu meðaleinkunnina 9,57; bæði af raungreina- og tæknibraut. Myndir af vef og Facebook síðu skólans.

Inga Rós Suska söng við upphaf athafnar  í Íþróttahöllinni og í lok athafnar var skólasöngurinn sunginn við undirleik Atla Þórs Guðmundssonar nýstúdents. Forsöngvarar voru kennararnir Anna Eyfjörð, Bjarni Guðmundsson, Harpa Sveinsdóttir og Valdís B. Þorsteinsdóttir, segir á vef MA.

Í frétt á skólans segir ennfremur:

„Í ræðu sinni fór skólameistari yfir starf skólans í vetur, árangur nemenda og þá óbilandi trú sem hann hefur á ungu fólki. Hann minnti á fjölmargt sem nemendur standa sig vel í, auk námslegs árangurs, s.s. eftirminnilega sýningu LMA á Gosa, sigur MORFÍs liðsins, ólympíufara í námsgreinum, öflugt íþróttafólk og svo mætti áfram telja. Hann sagði að mikilvægast væri að kenna nemendum að læra og verða góðir námsmenn, frekar en að læra fyrir ákveðin störf, og hjálpa þeim að vinna að eigin farsæld. Hann minnti nýstúdenta á að þau gætu gert margt til að rækta eigin heilsu og lagt sitt af mörkum til góðs í heiminum.“

Löng hefð er fyrir því að fulltrúar afmælisárganga komi að brautskráningu og styrkja flest Uglusjóð, hollvinasjóð MA.

Fulltrúi 60 ára stúdenta var Guðmundur Hafsteinn Friðgeirsson

Fulltrúi 50 ára stúdenta var Steinunn H. Hafstað

Fulltrúi 40 ára stúdenta var Unnur Birna Karlsdóttir

Fulltrúi 25 ára stúdenta var Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir. Hún tilkynnti einnig um úthlutanir úr Uglusjóði, til þróunarverkefna kennara og til félagslífs og aðstöðu nemenda

Fulltrúi 10 ára stúdenta var Baldur Þór Finnsson

Krista Sól Guðjónsdóttir flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta, hún var forseti skólafélagsins Hugins sem stýrði félagslífi nemenda í vetur.

Að lokinni athöfn var haldið í MA þar sem myndir af árganginum og einstökum bekkjum voru teknar. Og framundan er svo rúmlega 700 manna veisla í kvöld, nýstúdentanna, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans í Íþróttahöllinni.