Fara í efni
Mannlíf

100 ár frá fæðingu Jóns M. Jónssonar

100 ár eru í dag, 3. nóvember, frá fæðingu Jóns Marinós Jónssonar klæðskera og kaupmanns, stofnanda hinnar landsþekktu verslunar, Herradeildar JMJ.
 
Ragnar Sverrisson kaupmaður í versluninni til áratuga, minnist tengdaföður síns á Facebook. „Að námi loknu vann hann við iðn sína og áfram eftir að hann stofnaði Herradeild JMJ árið 1956. Síðan rak hann fatasmiðjuna Burkna til viðbótar en fatnaður þaðan gat sér gott orð um allt land. Kraftur hans og áræðni fór ekki fram hjá þeim sem honum kynntust en þó minnast hans flestir fyrir lipurð og þægilega framkomu enda var hann einstaklega vandaður maður og vildi öllum gott gera,“ skrifar Ragnar.
 
„Á þessum degi minnumst við Jóns M. hér í Herradeildinni með virðingu og þakklæti. Læt fylgja nokkrar myndir frá farsælum starfsferli hans. Við vorum alla tíð miklir vinir og á ég honum mikið og margt að þakka. Blessuð sé minning Jóns Marinós Jónssonar,“ skrifar Ragnar Sverrisson. Meðfylgjandi eru myndirnar sem Ragnar birti í morgun.
 

Hjónin Jón Marinó Jónsson og Hulda Jónatansdóttir.

Nafnarnir Jón M. Jónsson og Jón M. Ragnarsson, sem fetaði í fótspor afa síns og föður og hefur þjónað viðskiptavinum Herradeildar JMJ um langt árabil.