Verða KA-menn í efri hluta deildarinnar?
Í dag kemur í ljós hvort KA verður í hópi sex efri liða Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu, þegar henni verður skipt í tvennt. KA mætir Fylki í Reykjavík, verður að sigra og jafnframt að treysta á önnur lið til að eiga möguleika á sæti í efri hlutanum. Telja verður miklar líkur á að það takist.
Síðasta umferð hinnar hefðbundnu deildar fer fram í dag og að því loknu tekur við framlenging þar sem efri liðin halda áfram keppni um Íslandsmeistaratitilinn og sæti í Evrópukeppni en þau neðri sex um að falla ekki. Keppni um sjálfan meistaratitilinn er reyndar nánast lokið og Víkingar gætu tryggt sér titilinn í dag, svo miklir eru yfirburðir liðsins.
KA-menn eru í æsispennandi baráttu um síðasta sætið í efri hlutanum. FH er í fimmta sæti með 31 stig, KR er í sjötta sæti, einnig með 31 stig en er með lakari markatölu, og KA er í sjöunda sæti með 28 stig.
Þetta eru leikirnir sem skipta KA-menn máli í dag:
- Fylkir - KA
KA er með átta mörk í mínus. - Breiðablik - FH
FH er með fimm mörk í mínus. - ÍBV - KR
KR er með sjö mörk í mínus.
Gríðarlega spennandi verður að fylgjast með lokaumferðinni því markamunur gæti ráðið úrslitum.
Lykilatriði er að KA fái þrjú stig í Árbænum. Annars á liðið ekki möguleika á sæti í efri hlutanum
Tökum dæmi. Færu leikirnir svona kæmust FH og KA í efri hlutann en KR sæti eftir í neðri hlutanum:
- KA vinnur Fylki með tveggja marka mun - KA yrði með 31 stig og sex mörk í mínus
- Breiðablik vinnur FH með eins marks mun - FH yrði með 31 stig og sex mörk í mínus
- ÍBV vinnur KR - KR yrði með 31 stig með fleiri mörk í mínus en KA og FH
KA gæti líka endað í fimmta sæti vinni liðið í Árbænum og FH tapi með það miklum mun að markatala liðsins verði verri en KA. Þá skiptir ekki máli hvernig fer í Eyjum. Sigri FH hins vegar Breiðablik eða liðin geri jafntefli má KR ekki fá stig í Eyjum til að KA komist í efri hlutann.
Skv. reglugerð KSÍ ræðst staða liða í deildinni af þessum atriðum, í þessari röð:
- Fjöldi stiga
- Markamismunur (skoruð mörk að frádregnum fengnum mörkum)
- Fjöldi skoraðra marka
- Fjöldi stiga í innbyrðis leikjum
- Markamismunur í innbyrðis leikjum
- Fjöldi skoraðra marka í innbyrðis leikjum
- Fjöldi skoraðra marka á útivelli í innbyrðis leikjum
Leikir dagsins hefjast allir kl. 14.00, og verða allir sýndir beint á íþróttarásum Stöðvar 2.
- Fylkir - KA
- Breiðablik - FH
- Stjarnan - Keflavík
- Fram - Víkingur
- ÍBV - KR
- Valur - HK