Íþróttir
Tveir stórsigrar SA stúlkna í Reykjavík
18.12.2022 kl. 06:00
Íslandsmeistarar Skautafélags Akureyrar unnu lið Skautafélags Reykjavíkur í tvígang um helgina í Reykjavík í Hertz deild Íslandsmótsins. Báðir leikirnir enduðu 5:0 en liðins mættust á laugardag og sunnudag. SA er komið upp að hlið Fjölnis í efsta sæti deildarinnar með 18 stig.
Í gær gerði Katrín Björnsdóttir tvö mörk, Magdalena Sulova, Gunnborg Jóhannsdóttir og Hilma Bergsdóttir eitt hvor.
Á föstudag vann SA einnig 5:0 sem fyrr segir. Katrín Björnsdóttir skoraði í fyrstu lotu og svo komu ekki mörk fyrr en í þriðju og síðustu; þá skoruðu Sólrún Arnardóttir, Gunnborg Jóhannsdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir og Berglind Leifsdóttir.