Fara í efni
Íþróttir

Þórsvöllurinn kenndur við VÍS næstu þrjú ár

Ingvi Hrafn Ingvason, þjónustustjóri VÍS á Akureyri, og Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, handsala samninginn á Þórsvellinum sem brátt mun ganga undir nýju nafni. Ljósmynd: VÍS

Nýlega var undirritaður samningur til þriggja ára milli VÍS og íþróttafélagsins Þórs um að „hinn víðfrægi Þórsvöllur á Akureyri verði nú VÍS völlurinn. Enda eiga VÍS og Þór rauða litinn sameiginlegan,“ eins og segir í tilkynningu frá tryggingafélaginu.

„Það liggur beinast við að Þórsvöllurinn verði VÍS-völlurinn, enda eigum við fallega rauða litinn sameiginlegan,“ er haft eftir Ingva Hrafni Ingvasyni, þjónustustjóra VÍS á Akureyri, í tilkynningunni. „Við viljum leggja okkar af mörkum til samfélagsins og það er okkur ljúft og skylt að styrkja íþróttastarfið með þessum hætti. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Ingvi Hrafn.

Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, lýsir einnig yfir mikilli ánægju: „Við erum þakklát VÍS fyrir þetta rausnarlega framlag og samninginn til næstu þriggja ára. Þetta skiptir íþróttastarfið miklu máli. Við erum því virkilega spennt fyrir komandi tímum.“

Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson, leikmaður Þórs, Ingvi Hrafn Ingvason, þjónustu stjóri VÍS á Akureyri, Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, og Hulda Björg Hannesdóttir, leikmaður Þórs/KA. Ljósmynd: VÍS