Þórsstelpurnar unnu stórsigur í Hólminum
Þórsarar unnu í kvöld 33 stiga sigur, 98:65, á Snæfelli í Stykkishólmi í efstu deild Íslandsmóts kvenna í körfubolta, Subway deildinni. Þórsliðið er nú í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig en Snæfell, sem einnig er nýliði í deildinni, er neðst án stiga.
- Skorið eftir leikhlutum: 17:10 – 10:31 – 27:41 –16:32 – 22:25 – 65:98
Upphafskafli leiksins var gestunum erfiður og kom satt að segja á óvart. Heimamenn höfðu sjö stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta en veður skipuðust skjótt í lofti eins og sjá má á tölunum hér að ofan.
Yfirburðir Þórsara voru gríðarlegir; þeir skiptu um gír strax í byrjun annars leikhluta og héldu uppteknum hætti í þeim þriðja. Fjórði leikhluti var aðeins formsatriði.
Lore Devos var frábær í Þórsliðinu; skoraði 37 stig, tók 10 fráköst og átti 5 stoðsendingar. Hrefna Ottósdóttir gerði 17 stig.
Tölfræði Þórsaranna í kvöld: stig – fráköst – stoðsendingar
- Lore Devos 37 – 10 – 5
- Hrefna Ottósdóttir 17 – 4 – 2
- Eva Wium Elíasdóttir 8 – 5 – 5
- Maddie Sutton 8 – 14 – 5
- Heiða Hlín Björnsdóttir 6 – 0 – 3
- Karen Helgadóttir 6 – 2 – 3
- Vaka Jónsdóttir 6 – 1 – 0
- Jovanka Ljubetic 4 – 1 – 5
- Rebekka Halldórsdóttir 3 – 2 – 0
- Valbjörg Ela Bragadóttir 3 – 0 – 1
Smellið hér til að sjá alla tölfræði leiksins