Þórsstelpurnar fara upp í efstu deild
Kvennalið Þórs í körfubolta leikur í efstu deild Íslandsmótsins næsta vetur í fyrsta skipti í 45 ár! Þórskonur léku síðast í deild þeirra bestu veturinn 1977 til 1978.
Þórsliðið vann Snæfell í Stykkishólmi í í kvöld í undanúrslitum eftir framlengingu, 100:90. Þetta var fjórði leikur liðanna í undanúrslitum og Stelpurnar okkar unnu einvígið 3:1.
Þegar úrslitakeppnin hófst var reglugerð Körfuknattleikssambandsins (KKÍ) þannig að fjögur efstu lið næst efstu deildar berðust um eitt laust sæti í þeirri efstu næsta vetur. Akureyri.net hefur fjallað um að sigurvegarinn í rimmu Þórs og Snæfells léki í framhaldinu við annað hvort Stjörnuna eða KR til úrslita í deildinni og sigurvegari þeirrar glímu færi upp. Nú hefur verið upplýst að breyting var samþykkt á ársþingi KKÍ fyrir fáeinum dögum og tekur gildi strax: vissulega mætast tvö lið um sigur í deildinni en þau fara bæði upp í efstu deild!
Stjarnan vann KR í hinum undanúrslitunum og leikur við Þór um gullið, en bæði Þór og Stjarnan leika sem sagt í efstu deild næsta vetur.
Leikurinn í Stykkishólmi í kvöld var æsispennandi eins og fyrri viðureignir liðanna. Staðan í hálfleik var 44:36 fyrir Þór en þegar leiktíminn var að renna út höfðu Snæfellingur þriggja stiga forystu, 81:78, og allt stefndi í að liðin yrðu að mætast í fimmta skipti. Þá sté fram Eva Wium Elíasdóttir og jafnaði með mögnuðu þriggja stiga skoti!
Þessi glæsilega karfa Evu kveikti svo sannarlega í leikmönnum Þórs og hópi stuðningsmanna sem fylgdi þeim vestur og gestirnir voru miklu sterkari í framlengingunni og unnu leikhlutann 19:9.
Framlag Þórsara í leiknum var sem hér segir:
- Madison Anne Sutton 27 stig, 15 fráköst, 5 stoðsendingar
- Tuba Poyraz 23 stig, 18 fráköst, 2 stoðsendingar
- Hrefna Ottósdóttir 18 stig, 1 frákast, 5 stoðsendingar
- Heiða Hlín Björnsdóttir 16 stig, 1 frákast, 6 stoðsendingar
- Eva Wium Elíasdóttir 11 stig, 4 fráköst, 5 stoðsendingar
- Karen Lind Helgadóttir 3 stig
- Emma Karólína Snæbjarnardóttir 2 stig, 2 fráköst
- Rut Herner Konráðsdóttir 1 stoðsending
Smellið hér til að sjá alla tölfræðina
Hópur Þórsara fylgdi stelpunum vestur í Stykkishólm og hvatti þær til dáða.