Þórsarar hafa samið við finnskan varnarmann
Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við finnskan varnarmann, Akseli Kalermo, um að leika með liðinu í sumar.
„Akseli, eða Axel eins og hann er alltaf kallaður, er 26 ára gamall miðvörður sem hefur spilað í efstu deild í Litháen undanfarin tvö og hálft ár. Axel á leiki fyrir öll yngri landslið Finnlands og þegar hann var sautján ára gamall var hann keyptur til ítalska stórliðsins Atalanta,“ segir á heimasíðu Þórs í morgun.
„Axel er ætlað að leysa Orra Sigurjónsson af. Við erum búnir að vera að bíða aðeins með og sjá hvernig meiðslin hjá Bjarka [Þór Viðarssyni og Birgi Ómari Hlynssyni] myndu þróast en þeir hafa verið meira og minna frá síðan um áramót,“ segir Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs í fréttinni.
„Axel er stór og sterkur varnarmaður og er góður á boltanum. Hann spilaði á sínum unglingsárum með Brommapojkarna í Svíþjóð og Atalanta á Ítalíu og er mjög vel skólaður leikmaður. Hann ætti að styrkja liðið mjög mikið,“ segir Þorlákur.
Axel kemur til landsins á morgun og mætir þá á fyrstu æfinguna með Þórsliðinu.