Íþróttir
Þórsarar fá Jóhann að láni frá KA
Þórsarar hafa fengið handboltamanninn Jóhann Einarsson að láni frá KA út veturinn. Jóhann, sem er 24 ára leikstjórnandi eða skytta, mætti á fyrstu æfinguna hjá Þór í kvöld.
Aron Hólm Kristjánsson, leikstjórnandinn ungi hjá Þór, meiddist á dögunum og ekki er ljóst hve lengi hann verður frá.