Íþróttir
Þór/KA vann í Keflavík og er komið í þriðja sæti
04.07.2023 kl. 23:00
Tahnai Annis með boltann í fyrri deildarleik sumarsins gegn Keflavík. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Tahnai Annis var hetja Þórs/KA í kvöld þegar liðið vann Keflavík 1:0 á útivelli í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Hún gerði eina markið af stuttu færi eftir aukaspyrnu í fyrri hálfleik.
Breiðablik og Valur eru efst og jöfn með 23 stig og Stelpurnar okkar í Þór/KA eru komnar upp í þriðja sæti með 19 stig. Öll liðin eru búin með 11 leiki.
Smellið hér til að sjá leikskýrsluna
Smellið hér til að sjá veglega umfjöllun fotbolta.net