Þór/KA mætir Val í Bestu deildinni í dag
Þór/KA mætir Val í Reykjavík í dag í Bestu deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Leikurinn er liður í fyrstu umferð fimm leikja framlengingar sex efstu liða deildarinnar.
Upphaflega átti leikurinn að fara fram á morgun, föstudag, en var flýtt um sólarhring vegna mjög slæmrar veðurspár á suðvesturhorninu annað kvöld og aðra nótt. Gul veðurviðvörun er vegna þessa frá Suðurlandi og allt vestur á firði.
- Valur - Þór/KA
fimmtudag 1. september 18.00 - Þór/KA - Breiðablik
miðvikudag 13. september 16.45 - Þróttur - Þór/KA
sunnudag 17. september 14.00 - Þór/KA - Stjarnan
laugardag 30. september 14.00 - FH - Þór/KA
föstudag 6. október 15.45
Liðin halda stigunum úr 18 liða hefðbundinni deildarkeppni og að loknum þessum fimm leikjum liggur fyrir hvaða lið verður Íslandsmeistari og hverjir tryggja sér þátttökurétt í Evrópukeppni.
Valur stendur óneitanlega vel að vígi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn; hefur 42 stig í efsta sæti, átta stigum á undan Breiðabliki. Fimmtán stig eru í pottinum.
Staðan í deildinni fyrir fimm síðustu leikina:
- Valur 42 stig
- Breiðablik 34
- Stjarnan 29
- Þróttur R. 28
- FH 28
- Þór/KA 26
Smellið hér til sjá alla leikina sem eftir eru og stöðuna í deildinni