Íþróttir
Sverre, Jóhannes og Arnór í goðshagnahöllina
03.03.2022 kl. 06:00
Frá vinstri: Atli Ragnarsson gjaldkeri handknattleiksdeildar KA, Kristján Þór Kristjánsson eigandi Verksmiðjunnar sem keypti Sverre Andreas Jakobsson inn í goðsagnahöllina, Sverre, Jóhannes Gunnar Bjarnason og Haddur Júlíus Stefánsson formaður handknattleiksdeildar KA. Ljósmynd: Þórir Tryggvason.
Arnór Atlason, Jóhannes Gunnar Bjarnason og Sverre Andreas Jakobsson voru teknir inn í goðsagnahöll handknattleiksdeildar KA fyrir leikinn við Stjörnuna á dögunum. Stórar myndir af þeim ásamt upplýsingum eru þá hengdar upp í KA-heimilinu.
Fyrir eru í höllinni Patrekur Jóhannesson, Valdimar Grímsson, Erlingur Kristjánsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Alfreð Gíslason, og Róbert Julian Duranona.
Þetta skemmtilega framtak virkar þannig að fyrirtæki eða einstaklingar geta keypt KA-mann inn í goðsagnahöllina og eru þá nöfn viðkomandi eða merki við tilheyrandi mynd.
Sagt er frá afrekum þremenninganna á heimasíðu KA:
- „Jóhannes Gunnar Bjarnason eða Jói Bjarna eins og hann er iðulega kallaður lék um árabil með meistaraflokksliði KA og lék hann alls 226 leiki fyrir félagið. Í kjölfarið varð hann einn sigursælasti yngriflokkaþjálfari Íslandssögunnar en hann gerði KA alls 16 sinnum að Íslandsmeisturum áður en hann tók við stjórn meistaraflokks KA og gerði liðið að Bikarmeisturum árið 2004. Framlag Jóa við uppbyggingu handboltans innan KA verður aldrei fullmetið.“
- „Sverre kom ungur inn í sterkt lið KA veturinn 1994-1995 og vann í kjölfarið allt sem hægt var að vinna með liðinu. Hann varð Deildarmeistari 1996 og 1998, Bikarmeistari 1995 og 1996 og Íslandsmeistari árið 1997 með KA og í kjölfarið lék Sverre sem atvinnumaður í Þýskalandi og lék alls 182 landsleiki fyrir Íslands hönd þar sem liðið vann silfur á Ólympíuleikunum 2008 og brons á Evrópumeistaramótinu árið 2010.“
- „Arnór Atlason steig sín fyrstu skref með meistaraflokki KA tímabilið 2000-2001 er liðið varð Deildarmeistari. Hann varð Íslandsmeistari með KA árið 2002 og fór fyrir liði KA sem varð Bikarmeistari árið 2004. Hann hélt ungur út í atvinnumennsku þar sem hann lék með nokkrum af bestu liðum heims. Hann lék 203 landsleiki fyrir Íslands hönd og gerði í þeim 437 mörk. Með landsliðinu vann hann silfur á Ólympíuleikunum 2008 og brons á Evrópumeistaramótinu 2010 þar sem hann var stoðsendingahæsti maður mótsins.“