Stórskemmtileg byrjun á einvíginu
SA Víkingar, lið Skautafélags Akureyrar, hafði betur gegn Skautafélagi Reykjavíkur í fyrsta úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí. Liðin mættust á Akureyri í kvöld og úrslitin urðu 6:5 í kaflaskiptum hörkuleik.
Fjölmennt var í Skautahöllinni á Akureyri og liðin skemmtu áhorfendum konunglega. SR komst í 2:0 eins og sjá má hér að neðan en síðan gerði heimamenn næstu fjögur mörk.
- 0:1 Axel Orongan (11. mín.)
- 0:2 Styrmir Maack (13.)
- 1:2 Heiðar Jóhannsson (14.)
- 2:2 Ævar Arngrímsson (25.)
- 3:2 Hafþór Sigrúnarson (33.)
- 4:2 Hafþór Sigrúnarson (34.)
- 4:3 Sölvi Atlason (37.)
- 5:3 Unnar Rúnarsson (38.)
- 6:3 Unnar Rúnarsson (40.)
- 6:4 Egill Þormóðsson (43.)
- 6:5 Brynjar Bergmann (60. - rúmlega 30 sekúndur voru eftir)
Liðin mætast næst í Reykjavík á fimmtudagskvöldið og þriðja úrslitaleikurinn verður á Akureyri á laugardaginn. Það lið sem fyrr sigrar í þremur leikjum verður Íslandsmeistari.
Hafþór Sigrúnarson (23) skorar þriðja mark SA í kvöld með flottu skoti. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.
Vinir en mótherjar í kvöld! Akureyringurinn Alex Orongan, til vinstri, gerði fyrsta mark leiksins fyrir SR en Unnar Rúnarsson, fyrrum samherji hans, skoraði í tvígang fyrir SA.