„Stelpurnar okkar“ unnu Keflvíkinga
Þór/KA sigraði Keflavík 3:2 í kvöld á Þórsvellinum í Bestu deildinni í knattspyrnu, efstu deild Íslandsmótsins. Tiffany Janea McCarty og Sandra María Jessen komu Stelpunum okkar í 2:0, gestirnir minnkuðu muninn en Margrét Árnadóttir gerði þriðja mark Þórs/KA áður en Keflvíkingar minnkuðu muninn aftur.
Mörk Þórs/KA
1:0 Hulda Ósk Jónsdóttir sendi fyrir markið, markvörðurinn hikaði og Tiffany Janea McCarty komst á milli varnarmanna og skallaði í netið. (42. mín.)
2:0 Hulda Ósk var aftur á ferðinni, átti fasta fyrirgjöf með jörðinni frá hægri (52. mín.), markvörðurinn sló boltann sem skrúfaðist upp í loftið og Sandra María Jessen skoraði með skalla.
3:2 Tiffany sendi boltann (71. mín.) inn í vítateig á Margréti Árnadóttur sem skoraði laglega með vinstrifótar skoti; hún sendi boltann á milli vinstri markstangarinnar og markvarðarins.
Smellið hér til að sjá leikskýrsluna
Sigurmarkið! Tiffany McCarty sendir boltann inn í vítateig ...
... á Margréti Árnadóttur, sem var kominn langleiðina að markteigshorninu vinstra megin þegar hún lét vaða á markið og boltann fór á milli markvarðarins og nærstangarinnar.
Og svo var vitaskuld fagnað að hætti hússins!